Dagskrá afmæli Sjálfsbjargar
Á svölum yfir lágbyggingu C- álmu. Milli kl. 14:00-15:00: Ávörp formanns Sjálfsbjargar lsf, Ragnars Gunnars Þórhallssonar, Félagsmálaráðherra , Árna Páls Árnasonar, borgarstjóra Reykjavíkur, Hönnu Birnu Krisjánsdóttur, og formanns ÖBÍ, Halldórs Sævars Guðbergssonar. Anna Ólafsdóttir Björnsson söguritari Sjálfsbjargar mun skýra frá sínu verki. Ávörp eldri félaga og annarra ef óskað er. Uppistand hjá Hjólastólasveitinni. Milli 15:00-16:00: Dúett : Stefán Helgi Stefánsson og Davíð Ólafsson óperusöngvarar. Daníel Örn töframaður. Hlómsveitin SJER á báti Krístín R. Magnúsdóttir fer yfir sögu Krika og ferðasjóðs íbúa Hátúni 12. Hljómsveitin Hjónakorn
í Garðinum sunnanmegin. Milli 16:00-17:00 Leikhópurinn Lotta Fjöllistamenn Daníel Örn , Egill ofl.
Á svölum yfir lágbyggingu C- álmu. Milli 17:00-18:00 Hljómsveitin Napoleon Hljómlistamennirnir Daníel og Tobías. Hljómsveitin Nafla-Jón
|
 |
 |
 |
Sjálfsbjörg og Olís framlengja þjónustu- og afsláttarsamning
Sjálfsbjörg hefur nú framlengt og talsvert bætt samning um ódýrara bensín fyrir félagsmenn hjá Olís. Kjörin hafa þegar tekið gildi á eldri kort.
Afsláttur félagsmanna Sjálfsbjargar er þessi: 6kr. í afslátt af hverjum lítra frá listaverði á fullri þjónustu 4kr. í afslátt af hverjum lítra frá listaverði á sjálfsafgreiðasluþjónustu 10% afslátt af öllum vörum nema tóbaki, símkortum, getraunum og tímaritum. Gildir þessi afsláttur einnig við verslanir Ellingsen en þó ekki af ferðavögnum né tilboðsvörum.
Vildarsjóður Sjálfsbjargar fær svo 0,5% af andvirði viðskipta félagsmanna Sjálfsbjargar í gegnum kortið. Taka skal þó fram að ef félagsmaður greiðir með VISA-Icelandair korti þá þiggur hann vildarpunkta sjálfkrafa frá Olís og renna þá ekki styrktarpunktar til Sjálfsbjargar.
Eru þetta góðar fréttir fyrir félagsmenn sérstaklega í aðdraganda bensínhækkanna.
|
 |
 |
 |
50 ára afmæli Sjálfsbjargar lsf
Haldið verður upp á 50 ára afmæli Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, laugardaginn 6. júní 2009 í og við Sjálfsbjargarhúsið að Hátúni 12 milli kl. 14 og 18, með uppákomum og veitingum. Allir Sjálfsbjargarfélagar og velunnarar eru velkomnir. - Sjálfur afmælisdagurinn er 4. júní, en landssambandið var stofnað þann dag árið 1959. Sambandsstjórnarfundur verður haldinn föstudaginn 5. júní milli kl. 10 og 15. - Framkvæmdastjórnarfundur verður haldinn 4. júní. - Ýmis verkefni eru í gangi í tengslum við þessi tímamót samtakanna: Verið er að rita sögu samtakanna, sem Anna Ólafsdóttir Björnsson sagnfræðingur annast og nýr vefur Sjálfsbjargar er í smíðum. Hvoru tveggja verður tilbúið í fyrstu útgáfu í kringum afmælið. Klifur, blað Sjálfsbjargar lsf, afmælisblað, mun koma út síðar í sumar og þar verða m.a. myndir og frásögn af afmælishaldinu 6. júní. Helstu baráttumál sem nú eru í gangi eru stofnun Independent Living félags (Sjálfstætt líf), stofnun samvinnufélags um notendastýrða persónulega aðstoð, aðgengismálin, bætt löggjöf varðandi málefni fatlaðra í tengslum við samning SÞ um réttindi fólks með fötlun og stefnumótun vegna starfsemi Sjálfsbjargarheimilisins. - Ragnar Gunnar Þórhallsson, formaður Sjálfsbjargar lsf
|
 |
 |
 |
Ferðaþjónusta Norðurlandana
Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti nýverið að ganga til samninga um tilraunaverkefni er varðar ferðaþjónustu fyrir fatlaða á Norðurlöndunum. Verkefnið, sem er til tveggja ára, er leitt af samtökum hreyfihamlaðra á Norðurlöndum, Nordisk Handikap Forbund, sem Sjálfsbjörg Landssamband fatlaðra á Íslandi á aðild að. Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.
Meira um það hér (opnast í nýjum glugga)
|
 |
 |
 |
Er starfsöryggi fatlaðra ógnað í kreppunni?
Á forsíðu Fréttablaðsins í dag 5.maí er að finna áhugaverða grein um starfsöryggi fatlaðra núna í kreppunni. Tekið er viðtal við forstöðumenn fyrirtækja eins og Múlalundur, Plastiðjan Bjarg og Örva en þessi fyrirtæki sérhæfa sig í að veita fötluðum vinnu. Ekki hafa þau þurft að segja upp starfsmönnum sem betur fer en þegar mikið herjar á eins og í dag veit maður aldrei. Mikilvægt er að vernda þessa vinnustaði eins vel og hægt er.
Mæli með því að fólk lesi forsíðu Fréttablaðsins í dag.
|
 |
 |
 |
Lokað og læst á langveika stúlku
Mbl.is er með frétt 3. apríl 2009 um hversu grátt stofnanamiðuð og ófullnægjandi þjónusta leikur mikið fatlaða stúlku og fjölskyldu hennar. Hér þurfa einhverjir að kynna sér notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og hugmyndafræðina að baki henni.
|
 |
 |
 |
Undirbúningsnefnd stofnunar Independent Living félags á Íslandi - Sjálfstætt líf
Á fjölmennum fundi fimmtudaginn 26. mars 2009, kl. 16.30 á Grand Hótel, Reykjavík, var kynningar- og undirbúningsfundur um stofnun félags um hugmyndafræðina, sjálfstætt líf, Independent Living - meira hér . . .
|
 |
 |
 |
Viljayfirlýsing um flutning þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga
Ríkisstjórn Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu 13. mars 2009 viljayfirlýsingu um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga árið 2011. Stefnt er að því að ljúka samkomulagi um framkvæmdina á þessu ári. Nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Bannað að bæta aðgengi með lyftu!
Félagsbústaðir hafa fengið synjun á að setja lyftu í fjölbýlishús. Þetta mun Sjálfsbjörg lsf kanna nánar og berjast fyrir lausn á. Sjá nánar frétt hér á RÚV
|
 |
 |
 |
Bifreiðakaupastyrkir hreyfihamlaðra - breytingar!
Ný reglugerð nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða hefur tekið gildi. Áfangasigur varðandi nokkur atriði, en annað aukið réttlæti. Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Ferðaþjónusta fatlaðra - Norðurlönd
Þann 8. desember 2008 tók gildi tilraunaverkefni til tveggja ára milli Reykjavíkurborgar, Kaupmannahafnar, Osló og Stokkhólms sem felst í því að hreyfihamlaðir íbúar borganna geta nú nýtt sér ferðaþjónustu fatlaðra í þessum borgum. Nánar um það hér.
|
 |
 |
 |
Foreldrafundur hjá BUSL
Miðvikudaginn 4. febrúar nk. kl. 17.30 bjóðum við ykkur foreldrum og/eða forráðarmönnum verðandi BUSL-ara að kíkja í kaffi á Aflagranda 40, þar sem BUSL er til húsa. Leifur Leifsson verkefnastjóri BUSL og Berglind Rós Karlsdóttir forstöðukona Ungmennadeildar RRKÍ verða á staðnum og taka á móti ykkur. Þar getið þið skoðað húsnæðið og spurt allra þeirra spurninga sem brenna á ykkur. Allir hjartanlega velkomnir!
|
 |
 |
 |
BUSL byrjað aftur!
Hið vinsæla verkefni Sjálfbjargar-Landssamands og Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, BUSL, hefur hafið göngu sína að nýju eftir stutt hlé. Verkefnið er fyrir hreyfihamlaða unglinga á aldursbilinu 13-18 ára. Unglingarnir fá tækifæri til að hittast og skemmta sér í góðum félagsskap og vinna saman að hagsmunamálum sínum. Í starfinu er lögð áhersla á félagslegt frumkvæði og byggist starfið á áhugamálum þátttakenda hverju sinni. Starfið er skipulagt þannig að uppákomur eru á tveggja vikna fresti yfir vetrartímann og vinna leiðbeinendur og BUSL-arar saman að dagskrá fyrir hverja önn. Að þessu sinni verða hittingar í Aflagranda 40, annan hvern fimmtudag frá kl. 19:30-22:00. Fyrsti hittingur var 22. Janúar síðastliðinn og því næsti hittingur þann 5 febrúar 2009. Dæmi um það sem verður gert: Bökuð pizza, hlutverkaleikir, keppniskvöld, kaffihúsaferðir, bíó og margt, margt fleira.
Allir hreyfihamlaðir unglingar eru boðnir velkomnir í starfið! Leifur Leifsson frá Sjálfsbjörg er verkefnastjóri Busls og getur veitt nánari upplýsingar á netfanginu leifur.leifssons@reykjavik.is. Einnig veitir forstöðukona Ungmennadeildar Rauða krossins nánari upplýsingar um starfið á netfanginu berglind@redcross.is eða í síma 545-0407.
|
 |
 |
 |
Sjálfsbjörg lsf á fréttastöðinni ÍNN
Núna 20. janúar voru Ragnar Gunnar Þórhallsson, formaður, og Kolbrún Stefánsdóttir, framkvæmdarstjóri, í viðtali á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Var það Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sem tók viðtalið. Fjallað var um málefni fatlaðra á Íslandi, Sjálfsbjörg og notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) við faltaða (notendastýrð þjónusta). Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér . . .
|
 |
 |
 |
Ferða "þjónusta" fatlaðra gagnrýnd út frá félagslega sjónarhorninu á fötlun
Embla Ágústsdóttir, framhaldsskólanemi og stundakennari, skrifar grein í Mbl. 27. janúar 2009 og ræðir allsendis ófullnægjandi ferðaþjónustu fatlaðra.
|
 |
 |
 |
Málefnaskrá Barack Obama, nýs forseta USA, yfir málefni fatlaðra
Nýkjörinn forseti í Bandaríkjunum birtir á vefsíðu Hvíta hússins málefnaskrá sína í málefnum fatlaðra. Þar er lögð áhersla á aðgengi fatlaðra að menntun, unnið verði gegn mismunun á grundvelli fötlunar, jöfnun tækifæra, aukinni atvinnuþátttöku og stuðning við sjálfstætt líf úti í samfélaginu. Sjá nánar hér á vefsíðu Hvíta hússins . . .
|
 |
 |
 |
Hress- og hvatningarverðlaun Ný-ungar veitt
Fullveldisdaginn þann 1. desember sl. voru félagar Ný-ungar staddir á Grand Hótel þar sem viðurkenningar í tilefni Alþjóðadags fatlaðra voru afhentar. Það var Grand Hótel sem fékk Hressleikaverðlaunin 2008 og Félagsmálaráðuneytið fékk Hvatningarverðlaunin 2008. Þakkar Ný-ung fyrir sig og óskar aðilunum tveimur til hamingju með daginn.
|
 |
 |
 |
Sjálfsbjörg lsf. og Ný-ung héldu upp á Alþjóða dag fatlaðra
Þann 29. nóvember síðastliðinn sameinuðu Sjálfsbjörg lsf. og Ný-ung ungliðahreyfing Sjálfsbjargar krafta sína og voru með uppákomu í Smáralindinni. Þar voru seldar kökur, bækur og happdrættismiðar auk þess að einn félagi Ný-ungar var að skemmta fólki með boltaköstum og öðrum trúðslátum. Gekk dagur vel og þakka þessi félög fyrir þann stuðning sem þau fengu.
|
 |
 |
 |
Framlenging frítekjumarks samþykkt
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra mæti fyrir á Alþingi sl. föstudag fraumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar sem kveður á um framlengingu 100.000.- króna frítekjumarks á atvinnutekjur örorku og endurhæfingarlífeyrisþega og var frumvarpið samþykkt. Frumvarpið var lagt fram þar sem ljóst er að ekki tekst að ljúka endurskoðun örorkumatskerfins fyrir áramót eins og stefnt var að, en bráðabirgðaákvæði um frítekjumarkið rennur út um áramótin. Alls fá liðlega 4.700 örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar greiddar atvinnutekjur og nýtist frítekjumarkði þeim öllum til hærri bótagreiðslna en ella. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, hefur lagt ríka áherslu á framlengingu frítekjumarksins og fagnar því þessari ákvörðun.
|
 |
 |
 |
Styrkir hækka vegna hjálpartækja
Heilbrigðistráðherra hefur sett nýja reglugerð nr. 1138/2008 um styrki vegna hjálpartæka sem felur í sér nokkra hækkun vegna þeirra. Meginbreytingin felst í hækkun styrkja sem hafa verið í fastri krónutölu í eldri reglugerðum. Vegna gengisbreytinga undanfarnar vikur hefur orðið veruleg hækkun á hjálpartækjum undanfarið. Þess vegna er nú talið nauðsynlegt að hækka styrkina til að mæta auknum útgjöldum sjúkratryggðra. Kostnaðarauki vegna breytinganna er talin nema um 230 milljónum króna á ársgrundvelli. Þá er þess getið að um 45 milljóna króna hækkun er á styrkjum til kaupa á stómavörum, sem jafngildir um 40% hækkun. Um er að ræða fyrstu reglugerð þess efnis sem sett verður samkvæmt nýjum lögum um sjúkratyrggingar og koma í stað eldri reglugerða TR um hjálpartæki og að hluta til reglugerðar um styrki og uppbætur TR til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.
|
 |
 |
 |
Klébergsskóli fékk aðgengisverðlaunin 2008
Klébergsskóli á Kjalarnesi fékk aðgengisverðlaun Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, fyrir árið 2008. Að mati dómnefndar, sem naut aðstoðar Aðgengis ehf., sem sérhæfir sig í ráðgjöf vegna aðgengismála var skólinn mjög vel að verðlaununum kominn. Aðgengismál eru með miklum sóma, bæði úti við og innan skóla.
 | Ragnar Gunnar Þórhallsson afhendir aðgengisverðlaunin Klébergsskóla á dögunum |
 |  |
|
 |
 |
 |
Virðing og réttlæti fyrir alla – og aðgengi!
Í tilefni af alþjóðadegi fatlaðra 3. desember 2008 ritaði Þorkell Sigurlaugsson grein í Viðskiptablaðið og sagði m.a. frá Hvatningarverðlaunum ÖBÍ, en síðan segir hann frá reynslu sinni varðandi aðgengi fyrir alla á Hótel Borg og varpar fram nýstárlegri hugmynd um merkingar varðandi aðgengi. Hér er úrdráttur úr greininni . . .
|
 |
 |
 |
Margir atburðir næstu daga í tengslum við Alþjóðadag fatlaðra 3. desember o.fl. !
Ánægjuefni er að Arkitektastofan Batteríid stendur fyrir opnu málþingi um hönnun og aðgengi 27. nóvember.
Ný-ung, ungliðahreyfing Sjálfsbjargar, verður í Smáralindinni laugardaginn 29. nóvember með ýmsar uppákomur undir kjörorðunum "Virðing og jafnrétti fyrir alla!" í tilefni af Alþjóðadegi fatlaðra 3. desember, endilega látið sjá ykkur!
Á mánudeginum 1. desember er mikilvægur fundur um notendastýrða þjónustu kl. 17 á Grand Hótel.
Einnig verður Ný-ung með afhendingu Hressleikaverðlaunanna á Grand Hótel kl. 20.
Þann 3. desember mun Sjálfsbjörg lsf afhenda Klébergsskóla viðurkenningu fyrir aðgengi.
Halaleikhópurinn hlaut Kærleikskúluna 2008 26. nóvember!
Nánari upplýsingar um þessa atburði veitir skrifstofa landssambandsins, Kolbrún frkvstj. kolbrun@sjalfsbjorg.is eða Andri málefnafulltrúi andri@sjalfsbjorg.is Minnum á að dregið er í happdrætti Sjálfsbjargar lsf þann 3. desember.
Sjálfsbjargarhittingur opinn félagsmönnum er föstudaginn 28. nóvember 2008 frá kl. 16.00 til 19.00 í félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og árlega happdrættið og kaffisala félagsins verður laugardaginn 6. desember 2008, kl 14.
|
 |
 |
 |
Vel heppnaður Sambandsstjórnarfundur
Sambandsstjórnarfundur Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, var haldinn 15. nóvember sl. og þótti takast mjög vel í alla staði. Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Ályktun Evrópusamtaka fatlaðra vegna fjármálakreppunnar - Fatlað fólk gjaldi ekki fyrir kreppuna
Ályktun Evrópusamtaka fatlaðra (EDF) vegna fjármálakreppunnar - Fatlað fólk gjaldi ekki fyrir kreppuna - er aðgengileg hér á íslensku á vef ÖBÍ . . .
|
 |
 |
 |
Kynningar- og umræðufundur fyrir alla félagsmenn í aðildarfélögum Sjálfsbjargar lsf um fyrirhugaðar breytingar á almannatryggingakerfinu og örorkumat
Kynningar- og umræðufundur fyrir alla félagsmenn í aðildarfélögum Sjálfsbjargar lsf um fyrirhugaðar breytingar á almannatryggingakerfinu og örorkumat var haldinn 14. nóvember 2008 í Reykjavík. Nánar um fundinn hér . . .
|
 |
 |
 |
Sérstök sálfræðiaðstoð
Geðsvið Landsspítalans hefur opnað sálfræðiaðstoð fyrir einstaklinga sem glíma við mikinn kvíða, depurð, sektarkennd eða önnur álagseinkenni vegna þróunar fjármála á Íslandi undanfarið. Viljum við hvetja félaga til að nýta sér þess þjónustu ef þörf krefur.
Sálfræðiráðgjöfin er í Heilsuverndarstöðinni Við Barónsstíg. Til að byrja með munu tveir sálfræðingar sinna þjónustunni.
Sími ráðgjafarinnar er 458-9999 og verður ráðgjöfin opin á virkum dögum á bilinu 9-16.
|
 |
 |
 |
Pistill Dr. Tom Shakespeare um endurhæfingu
Íslandsvinurinn og fötlunarfræðingurinn með meiru Dr. Tom Shakespeare ritar pistil um reynslu sína að lenda í hjólastól af sinni alkunnu ritsnilld.
|
 |
 |
 |
Málefnafulltrúar ráðnir á skrifstofu Sjálfsbjargar lsf
Tveir málefnafulltrúar í hlutastarfi hafa verið ráðnir á skrifstofu Sjálfsbjargar lsf. Starf þeirra er m.a. að vinna að hagsmuna- og baráttumálum Sjálfsbjargar og innra starfi samtakanna, m.a. með því að liðsinna aðildarfélögum, stjórnum og nefndum, sbr. samþykktir þings samtakanna í maí 2008 um áherslur í starfi þeirra og stofnun málefnasjóðs. Málefnafulltrúarnir eru Sighvatur Blöndahl og Andri Valgeirsson. Nánar um skrifstofu landssambandsins hér . . .
|
 |
 |
 |
Ólympíumót fatlaðra í Peking 2008
Nýverið lauk Ólympíumóti fatlaðra í Peking en mótið mun vera eitt það stærsta og veglegasta sem nokkru sinni farið hefur fram. Íþróttasamband fatlaðra lét ekki sitt eftir liggja í myndatökunni og nú er komið myndasafn inn á myndasíðu ÍF sem telur á annað hundrað myndir.
|
 |
 |
 |
Frá Bretlandi um Independent Living (sjálfstætt líf, notendastýrða þjónustu)
Hér er mjög áhugaverð skýrsla, febrúar 2008, frá Bretlandi um Independent Living (sjálfstætt líf, notendastýrða þjónustu). Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Sveiflur í atvinnuleysi og örorku á Íslandi 1992-2006
Hér er athyglisverð fræðigrein sem birtist í Læknablaðinu, 3. tbl. 2008, með heitinu: Sveiflur í atvinnuleysi og örorku á Íslandi 1992-2006 (.pdf skjal). Höfundar eru Sigurður Thorlacius, sérfræðingur í heila- og taugasjúkdómum, og Stefán Ólafsson sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum.
|
 |
 |
 |
Breytingar á lífeyrisgreiðslum, tekjutengingum o.fl. hjá TR
Hér eru upplýsingar um breytingar á lífeyrisgreiðslum, tekjutenginum o.fl. hjá TR það sem af er árinu og til 1. júlí 2008. Smellið hér . . .
|
 |
 |
 |
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu 50 ára í dag 27. júní 2008
Félag Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu er 50 ára í dag! Sjá nánar hér á vef félagsins . . .
|
 |
 |
 |
Réttindabarátta fólks með fötlun, kosningamálið 2010?
Réttindabarátta fólks með fötlun, kosningamálið 2010? er grein í vefritid.is eftir Evu Kamillu Einarsdóttur um mannréttindi og fólk með fötlun. Greinin er hér . . .
|
 |
 |
 |
Klifur komið út!
Blað og málgagn Sjálfsbjargar lsf, Klifur, er komið út með spennandi efni um málefni fatlaðra og fréttir. Blaðið er hér á .pdf formi . . .
Blaðið er sent öllum félagsmönnum aðildarfélaga Sjálfsbjargar lsf.
|
 |
 |
 |
Sjálfsbjörg á Siglufirði, fyrsta Sjálfsbjargarfélagið, var stofnað 9. júní 1958 og er því 50 ára um þessar mundir
Af því tilefni efndi félagið til samsætis í Bíó-kaffi á Siglufirði sunnudaginn 8. júní 2008 og bauð öllum bæjarbúum. Flaggað var með Sjálfsbjargarfánanum um bæinn og fjölmenni mætt í samsætið. Formenn nokkurra Sjálfsbjargarfélaga mættu ásamt formanni og framkvæmdastjóra landssambandsins, fluttu ræður og færðu félaginu gjafir. Ýmsir stofnfélagar voru mættir og rifjuðu upp gamla tíma. Góð stemming og gleði ríkti á þessum degi. Gestir litu við í húsi félagsins á Siglufirði þar sem m.a. fer fram ýmiskonar handverksiðja, svo sem keramiks- og glermunagerð. Fréttavefurinn Lífið á Sigló var með mann á staðnum og tók margar myndir.
|
 |
 |
 |
Ný framkvæmdatjórn Sjálfsbjargar lsf og stjórn Sjálfsbjargarheimilisins
Á þingi Sjálfsbjargar lsf 16. og 17. maí 2008 var ný framkvæmdastjórn landssambandsins kjörin og ný stjórn Sjálfsbjargarheimilisins. Nöfn og myndir komnar á vefinn; smellið á viðkomandi stjórn hér að framan.
|
 |
 |
 |
Flugferðir og fatlaðir
Hvaða þjónustu er unnt að fá og hver er réttur hreyfihamlaðra og fatlaðra einstaklinga á flugvöllum og í flugvélum varðandi aðstoð, hjálpartæki, aðstoðarmenn o.fl.? Hvaða skyldur hafa flugvellir og flugrekendur? Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Þing Sjálfsbjargar lsf 16. og 17. maí 2008
Þing Sjálfsbjargar lsf var haldið í Sjálfsbjargarhúsinu 16. og 17. maí 2008. Hér eru þinggögn, m.a. samþykktar ályktanir um bifreiðamál hreyfihamlaðra. . .
|
 |
 |
 |
Fundir um notendastýrða þjónustu; val og vald til fatlaðra!
Fræðslufundur um notendastýrða þjónustu (dr. Peter Anderberg frá Svíþjóð kynnir) verður mánudaginn 26. maí 2008, kl. 10-12. Ennfremur verður stór ráðstefna um notendastýrða þjónustu í haust 27. september 2008, sem verður auglýst nánar síðar. Takið dagana frá!
|
 |
 |
 |
Noregur: Í ár er árið sem allt fær niðurstöðu!
Bjartsýni og baráttugleði ríkir hjá systursamtökum Sjálfsbjargar í Noregi, Norges Handikapforbund (NHF), segir Eilin Reinaas, formaður NHF. Í ár leggur norska ríkisstjórnin fram frumvörp til laga um bann við mismunun á grundvelli fötlunar og um aðgengi fyrir alla að mannvirkjum. Ennfremur um BPA (Brukerstyrt Personlig Assistanse), notendastýrða þjónustu, þar sem mikið hreyfihamlað og fatlað fólk stjórnar sjálft hver, hvenær og hvaða þjónusta er veitt vegna þarfa sinna. Notendastýrð þjónusta hefur verið við lýði í Noregi í nokkur ár en ekki hefur verið til sérstök löggjöf um hana. Sjá hér frétt á vef NHF um málefnin . . .
|
 |
 |
 |
Breytingarnar á almannatryggingum, greiðslur o.fl. 1. apríl og 1. júlí 2008
Hér eru upplýsingar um breytingarnar á almannatryggingum, greiðslum o.fl. 1. apríl og 1. júlí 2008. M.a. hækkanir, afnám tekjutenginga við tekjur maka, frítekjumörk o.fl. Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Sjálfsbjörg Bolungarvík gefur tæki til sjúkraþjálfunar
Sjálfsbjörg Bolungarvík hefur lengi stutt dyggilega við endurhæfingu og sjúkraþjálfun fólks í Bolungarvík og gaf í febrúar s.l. tæki til sjúkraþjálfunar. Smellið hér til að lesa allt um málið í frétt á vikari.is, fréttavef Bolvíkinga . . .
|
 |
 |
 |
Þingsályktun um að bæta aðgengi fatlaðra að háskólum
Á Alþingi hefur Steinunn Þóra Árnadóttir, varaþingmaður, ásamt fleirum lagt fram tímabæra tillögu að þingsályktun um bætt aðgengi fatlaðra að háskólum, en í greinargerð með ályktuninni eru gild rök færð fyrir átaki í þeim efnum. Fátt skiptir meira máli fyrir bætta stöðu fatlaðra í samfélaginu en aukin menntun. Þingsályktunin er hér á vef Alþingis.
|
 |
 |
 |
Minningarsjóður Jóhanns Péturs úthlutar 5 styrkjum
Minningarsjóður Jóhanns Péturs Sveinssonar, fyrrum formanns Sjálfsbjargar lsf, hefur úthlutað 5 styrkjum til einstaklinga. Sjá nánar fréttatilkynningu á hér . . .
|
 |
 |
 |
Framboð á þingi Sjálfsbjargar lsf maí 2008
Upplýsingar varðandi framboð í stjórnir og nefndir kosnar á þingi Sjálfsbjargar lsf 16. til 17. maí 2008. Smella hér . . .
|
 |
 |
 |
Sáttmáli SÞ um réttindi fólks með fötlun
Vinna hafin vegna fullgildingar Íslands á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun. Sjá nánar neðst á þessari vefsíðu (15. febrúar 2008) . . .
|
 |
 |
 |
Bestu þakkir
Verslunin Nettó hefur styrkt okkur um kr. 400.000,- og dreifði, til sinna viðskiptavina um land allt , upplýsingum um starfsemi Sjálfsbjargar lsf. Þeir gáfu viðskiptavinum sínum "höldur " , á Alþjóðadegi fatlaðra 3. des s.l. Þessar höldur eru til að bera þunga plastpoka og fást á skrifstofu okkar að Hátúni 12 í Reykjavík . Við þökkum kærlega fyrir okkur og óskum fyrirtækinu velfarnaðar.
|
 |
 |
 |
Halaleikhópurinn sýnir Gaukshreiðrið
Halaleikhópurinn frumsýndi 9. febrúar 2008 Gaukshreiðrið "One Flew Over the Cuckoo's Nest" eftir Dale Wasserman, byggt á skáldsögu Ken Kesey, í þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Leikstjóri verksins er Guðjón Sigvaldason. Leikhúsgestir tóku sýningunni með stórkostlegum fagnaðarlátum! Sjá nánar hér um sýningartíma o.fl. á vefsíðu Halaleikhópsins.
|
 |
 |
 |
Samfélag fyrir alla - fjárhagslega hagkvæmt
Það er fjárhagslega hagkvæmt fyrir fyrirtæki að taka tillit til fatlaðra, að mati Páls Ásgeirs Davíðssonar, sérfræðings á lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hann bendir á að ekki aðeins styrki stuðningur við fatlaða samfélagsstöðu og orðstír fyrirtækisins heldur séu fatlaðir og aðstandendur þeirra stór hópur neytenda og fjárfesta. Þá sé mikilvægt að athuga að í mörgum löndum eru lög um að fatlaðir starfsmenn og neytendur njóti sömu meðferðar og ófatlaðir. Þannig er tillit til fatlaðra vörn gegn bótakröfum. - (Frétt úr 24 stundir, 7. febrúar 2008)
|
 |
 |
 |
Fólk með hreyfihömlun og íbúðarhúsnæði
Grein um íbúðarhúsnæði og fólk með hreyfihömlun. Ljósi varpað á stöðuna og hugmyndir til úrbóta ræddar. Smellið hér . . .
|
 |
 |
 |
Umræða um leigutekjur og búsetuform hjúkrunarheimila
Í Fréttablaðinu 21. desember 2007 er áhugaverð frétt um leigutekjur og búsetuform hjúkrunarheimila. Meira hér . . . (.pdf skjal)
|
 |
 |
 |
Getraun í Kringlunni.
 | Krakkar að reyna getspeki sína |
 |  | Helgina 24. og 25. nóv. s.l. var verkefnið ,,Já ég vinn hérna" í Kringlunni í Reykjavík. Þá var í gangi skemmtileg getraun og tóku 136 aðilar þátt í henni. Ungir sem aldnir spreyttu sig á ágiskun á pennafjölda í krukku, en þeir voru 59 og var oft mikið fjör við borðið. Einn var með öll svör rétt og er því vinningshafi en það er Vignir Snær Stefánsson, Sandholti 30, 355 Snæfellsbæ. Við óskum honum til hamingju og þökkum öðrum fyrir þátttökuna.
|
 |
 |
 |
Málefni fatlaðra í Reykjavík - fólk með fötlun er fólk með getu
Björk Vilhelmsdóttir, formaður Velferðarráðs Reykjavíkur, vill málefni fatlaðra til sveitarfélaga og ræðir þau mál ásamt stefnu og áform Reykjavíkurborgar í því sambandi í blaðagrein í Mbl þann 27. nóvember 2007 (.pdf)
|
 |
 |
 |
Já, ég vinn hérna! í Kringlunni 24. og 25. nóvember 2007
Alþjóðadagur fatlaðra er 3. desember ár hvert. Þema dagsins nú er „Atvinna við hæfi fyrir einstaklinga með fötlun“. Af því tilefni var Sjálfsbjörg með verkefni í samvinnu við fyrirtæki í Kringlunni þessa helgi þar sem Sjálfsbjargarfélagar voru „starfsmenn“ í bolum merktum, Já, ég vinn hérna! Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Ekki veitir af: Handbók fyrir þingmenn um málefni fatlaðra!
Sameinuðu þjóðirnar hafa, í framhaldi af nýjum sáttmála um réttindi fatlaðra, gefið út "Handbók/leiðbeiningar fyrir þingmenn um sáttmála SÞ um réttindi fatlaðra og bókunina við sáttmálann: Frá útilokun til jafnréttis. Að gera réttindi fatlaðra raunveruleg." (.pdf)
|
 |
 |
 |
Happdrætti Sjálfsbjargar lsf - dregið 3. desember 2007
Í fyrsta sinn verður nú dregið í happdrætti Sjálfsbjargar lsf á Alþjóðadegi fatlaðra 3. desember 2007. Happdrættismiðar hafa verið sendir út og ennfremur er unnt að kaupa miða á skrifstofunni. Sjá nánar um Alþjóðadag fatlaðra hér . . .
|
 |
 |
 |
ÖBÍ varar við tillögum ASÍ og SA um áfallatryggingasjóð
- Í blaðinu 24 Stundir 18. október 2007 varar formaður ÖBÍ við tillögum ASÍ og SA (Samtaka atvinnulífsins) um áfallatryggingasjóð. Sjá viðtalið hér . . . - Framkvæmdastjóri ASÍ svarar gagnrýninni í sama blaði 19. október 2007. Sjá viðtal hér . . . - Minnisblað ÖBÍ um tillögur ASÍ og SA um breytingar á veikinda-, slysa- og örorkurétti. Sjá hér á vef ÖBÍ . . .
|
 |
 |
 |
Hvað er fötlun og hvað er örorka?
Pistill um fötlun og örorku. Hættum að nota orðið öryrki. Smellið hér . . .
|
 |
 |
 |
Stór dagur hjá Evrópusamtökum fatlaðra
4. október 2007 standa Evrópusamtök fatlaðra fyrir útisamkomu í Brussel, þar sem fatlaðir og stuðningsfólk frá 29 Evrópulöndum afhenda 1 milljón undirskrifta, en undirskriftasöfnun hefur farið fram síðustu 9 mánuði undir yfirskriftinni "Bætt réttindi og löggjöf fyrir fatlaða og afnemum mismunun". Þetta átak Evrópusamtakanna tengist m.a. Evrópuári jafnra tækifæra, sem stendur yfir 2007.
|
 |
 |
 |
Samningur SÞ um réttindi fatlaðra kominn á íslensku
Nú liggur fyrir bæði þýðing Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra og Valfrjálsa bókun við samninginn um réttindi fatlaðra á íslensku. Þetta er skyldulesning fyrir alla sem láta sig varða baráttu fatlaðra. Hér er samningurinn og bókunin . . .
|
 |
 |
 |
Okkar lið í Landsbankadeildinni
Sunnudaginn 23. september s.l. var undirrituð boðuð á knattspyrnuleik hjá Breiðablik-HK í Kópavogi á Kópavogsvelli. Þar afhentu þeir áheit sem Landsbankinn stendur fyrir og nefnist "Skorað fyrir gott málefni". Breiðablik tilnefndi Sjálfsbjörg lsf. Fjárhæðin sem safnaðist var kr 120.000 og kemur í góðar þarfir. Um leið og við þökkum innilega fyrir okkur sendum við Breiðabliksmönnum baráttukveðjur í boltanum og munum hugsa til þeirra með sama hlýhug og þeir til okkar. Kolbrún Stefánsdóttir.
|
 |
 |
 |
Saga um strætisvagn, hjólastól og Sigurfinn
Maður nokkur, sem heitir Sigurfinnur og notar hjólastól til að komast leiðar sinnar, hugðist fara í vinnuna og fá far með strætó, en svo er almenningsvagnaþjónusta á Íslandi nefnd. Framhald hér . . .
|
 |
 |
 |
Norrænt málþing um atvinnumál hreyfihamlaðra
Norrænt málþing um hreyfihamlaða á vinnumarkaði verður haldið föstudaginn 14. september 2007 á Grand hótel í Reykjavík. Þeir sem áhuga hafa á að sitja málþingið hafi samband við skrifstofu Sjálfsbjargar lsf. Nánari upplýsingar með því að smella hér. . .
|
 |
 |
 |
Atvinnumál hreyfihamlaðra í Noregi
Hér er viðtal, birt 3. ágúst 2007, við Eilin Reinaas, formann NHF (Norges Handikapforbund), sem er lögfræðingur að mennt og hreyfihömluð. Hún ræðir þær hindranir sem hreyfihamlaðir í Noregi standa frammi fyrir nú um stundir, en Norðmenn endurskipulögðu fyrir fáum árum tryggingakerfið m.a. og leggja nú miklu mun meiri áherslu á atvinnuþátttöku fatlaðra en áður var. Hér er viðtalið (smella hér)
|
 |
 |
 |
Götuhernaðurinn - nýr vefur
Götuhernaðurinn á www.oryrki.is hefur opnað nýjan vef. Þetta er hópur af ungmennum á aldrinum 18-23 ára, sem í sumar starfa við svokallaðan Götuhernað. Verkefnið er sumarstarf Ný-ungar í samstarfi við Reykjavíkurborg og Hitt húsið. Meginmarkmið hópsins er að bæta ímynd hreyfihamlaðra. Útgangspunktur verkefnisins er stafræn veraldarvefssíða þar sem er að finna myndbrot, hljóðbrot og önnur geysigóð afþreying þar sem gildum samfélagsins er snúið á haus. Hreyfihamlaðir gerðir að fyrirmyndum í samfélaginu.
|
 |
 |
 |
Hollvinir og happdrætti Sjálfsbjargar
Smellið á Hollvini til að kynna ykkur hvernig þið getið verið í stuðningsliði okkar. Minnum á að dregið var í sumarhappdrættinu 2007 þann 29. júní 2007 og vinningaskráin er hér.
|
 |
 |
 |
Noregur: Engar hindranir - herferð
Félags- og heilsufarsstjórnvöld í Noregi hafa sett í gang áróðursherferðina "Engar hindranir". Meira hér . . .
|
 |
 |
 |
Lífshjálp eða dauðahjálp?
Innan NHF, Nordisk handikapp forbund, hefur farið fram umræða um lífshjálp eða dauðahjálp. Minni umræða hefur verið um þessi mál á Íslandi en öðrum Norðurlöndum. Meira hér . . .
|
 |
 |
 |
Sjálfsbjörg, stofnun eða frelsi og þátttaka?
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfsbjargar lsf, setur fram skoðun sína um hlutverk og framtíð Sjálfsbjargar og Sjálfsbjargarheimilisins í pistlinum "Sjálfsbjörg, stofnun eða frelsi og þátttaka?". Lesið pistilinn hér . . .
|
 |
 |
 |
Heimildarmyndin Annað líf Ástþórs
Sýningar 29.-31. maí í Háskólabíói, alla dagana kl. 18. Ástþór ætlaði sér alltaf að verða bóndi. En hvernig lætur hann draum sinn rætast eftir að hann er kominn í hjólastól? Sjá nánar á kvikmynd.com - Sigursteinn Másson formaður ÖBÍ fór á forsýningu á myndinni og lýsti myndinni þannig: Þorsteinn hefur náð að fanga inntak nútímalegrar hugsunar um fatlaða sem þátttakendur í samfélaginu en ekki stofananamat og sagt okkur hetjusögu sem lætur engan ósnortin.
|
 |
 |
 |
Atvinnumál fatlaðra og kennslubók um aðgengi fyrir alla
Sjá nánar um atvinnumálin hér og um kennslubókina um aðgengi fyrir alla í Noregi.
|
 |
 |
 |
Stefnuyfirlýsing nýrrar ríkisstjórnar
Hér er tengill á stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Athygli er vakin m.a. á kaflanum "Bættur hagur aldraðra og öryrkja".
|
 |
 |
 |
Búsetumál fatlaðra - sjálfræði og jafnræði
Í stefnumótun félagsmálaráðuneytis er að finna ýmsar áherslur m.a. varðandi búsetumál fatlaðra, sem Sjálfsbjörg lsf tekur undir. Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Vaxandi ójöfnuður á Íslandi skv. vorskýrslu ASÍ 2007
Í vorskýrslu ASÍ 2007 sem ber heitið: Aukin misskipting í góðæri, kemur m.a. fram að þrátt fyrir mikla verðmæta aukningu síðustu ára hafi ójöfnuður aukist. Sjá nánar hér á vef ASÍ . . .
|
 |
 |
 |
Ráðstefnur sem áttu brýnt erindi við fatlaða
Nú eru glærur fyrirlesara komnar á vefinn, en þær er margar mjög áhugverðar fyrir baráttu fatlaðra fyrir jafnrétti og jafnræði í samfélaginu: Ráðstefnan Ný tækifæri til atvinnuþátttöku sem haldinn var 22. mars 2007 og ráðstefnan Mótum framtíð – Stefnur og straumar í félagslegri þjónustu sem haldinn var 29. og 30. mars 2007. Hér eru t.d. glærur dr. Hönnu Bjargar Sigurjónsdóttur, lektors í fötlunarfræði við HÍ, þar sem m.a. er fjallað um hvað sé fötlun og ólík sjónarhorn.
|
 |
 |
 |
Rokkarar í lagi! - og takið eftir textunum
Eurovision hvað! Hér eru rokkarar með stíl og skilaboð. Hafið hátalarana við tölvuna á og smellið hér . . .
|
 |
 |
 |
Aðgengi að ferðamannastöðum bætt!
2. maí 2007 var skrifað undir samstarfssamning sem miðar að bættu aðgengi allra að áningar- og útivistarstöðum um allt land. Meira hér . . .
|
 |
 |
 |
Klifur blað Sjálfsbjargar lsf apríl 2007
Nýtt Klifur, blað og málgagn Sjálfsbjargar lsf, kom út í lok apríl 2007. Smellið hér til að lesa blaðið . . .
|
 |
 |
 |
Hjálparlið Sjálfsbjargar lsf og styrkumsóknir
Úthlutað er tvisvar á ári ef fjármagn leyfir. Skilafrestur umsókna í sjóðinn er til 1. maí og 1. september. Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Fatlaðir: Mismunun úr tísku
Nýstárleg tískusýning var haldin í Kringlunni laugardaginn 14. apríl 2007, en þar kom fatlað fólk á svið og sýndi vortískuna „Íslenskur veruleiki - samfélag sem mismunar fólki." Á vef RÚV er unnt að hlusta og horfa á fréttir af atburðinum, smella hér . . .
|
 |
 |
 |
Fundur með fulltrúum stjórnmálaflokkanna um velferðarmál
Opinn fundur um velferðarmál var haldinn þriðjudaginn, 24. apríl 2007 á Grand hótel. Í pallborði sátu Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Siv Friðleifsdóttir, Guðjón A. Kristjánsson, Arndís Björnsdóttir og Ólafur Hannibalsson. Smellið hér til að sjá og hlusta á upptöku af fundinum á VefTV visi.is ÖBÍ, Þroskahjálp og Landsamband eldri borgara stóðu fyrir fundinum.
|
 |
 |
 |
Undirritun sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra
Ísland var meðal hóps fyrstu ríkja til að undirrita samninginn þann 30. mars 2007 við hátíðlega athöfn hjá Sameinuðu þjóðunum og valkvæða viðbótarbókun. Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Öryggi einstaklinga í hjólastól í bifreiðum og P-stæði fatlaðra
Að undanförnu hefur kastljósi fjölmiðla verið beint að skorti á reglum um öryggisbelti fyrir farþega í bifreiðum sem ætlaðar eru til flutnings hreyfihömluðum og sitja í hjólastól sem festur er við gólf bifreiðarinnar. Samgönguráðuneytið hefur birt drög að breytingu á reglugerð um hertar kröfur. - Ennfremur hafa verið gerðar breytingar á umferðarlögum varðandi viðurlög við að leggja í stæði fatlaðra án heimildar. - Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Uppbætur og styrkir vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðra
Breyting, sem tók gildi 22. mars 2007, hefur verið gerð á reglugerð um styrki og uppbætur Tryggingastofnunar ríkisins til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. Sjá nánar hér . . .
|
 |
 |
 |
Skýrsla nefndar forsætisráðherra um endurskoðun örorkumats og eflingu starfsendurhæfingar
Nefndin lauk störfum 5. mars 2007 og skilaði skýrslu. Sjá nánar skýrsluna og umfjöllun með því að smella hér.
|
 |
 |
 |
EDF European Disability Forum - stefnumörkun og undirskriftasöfnun
Regnhlífarsamtök 50 milljóna fatlaðra í Evrópu, EDF European Disability Forum, eru með í vinnslu drög að stefnumörkun um sjálfstætt líf fatlaðra, samfélagslega þátttöku og afstofnanavæðingu. Verður til umfjöllunar á aðalstjórnarfundi ÖBÍ 28. febrúar 2007. Einnig er í gangi undirskriftasöfnun á vef EDF til stuðnings baráttu fatlaðra. Meira . . .
|
 |
 |
 |
ULOBA - sjálfræði fatlaðs fólks um aðstoð
ULOBA er samvinnufélag fatlaðs fólks í Noregi, sem snýst um að uppfylla þarfir fatlaðs fólks fyrir einstaklingsmiðaða aðstoð þar sem þú ræður sjálfur aðstoðarstarfsmann til starfa og ákveður sjálfur verkefni hans, hvar, hvernig og hvenær þau eru unnin. Er þetta ekki spennandi valkostur sem fatlað fólk hér á landi þarf að kynna sér? Lesið meira um ULOBA með því að smella hér.
|
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
Áskorun Sjálfsbjargar lsf
Áskorun til þingflokksformanna stjórnmálaflokka á Alþingi frá framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar lsf.
Í tilefni af umræðum á Alþingi sem staðið hafa yfir um frumvarp til laga um breytingu á almannatryggingarlögum skorar framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar lsf á hæstvirt Alþingi að nota tækifærið við þær breytingar sem er verið að gera á almannatryggigalögunum að leiðrétta það óréttlæti sem felst í því þegar aldurstengd örorkuuppbót fellur niður við 67 ára aldur og öryrki flyst af örorkulífeyrir yfir á ellilífeyrir. Við það eitt að verða 67 ára og fara af örorkulífeyrir yfir á ellilífeyrir geta bætur öryrkjans lækkað um allt að 24.831, - kr. á mánuð.
|